Velkomin á vef Hæfingarstöðvarinnar í Keflavík
Á Hæfingarstöðina geta um 20 þjónustunotendur sótt þjónustu. Hæfingarstöðin þjónustar fólk með allar tegundir fatlana. Allir notendur eru 18 ára og eldri.
Hæfingarstöðin tekur að sér verkefni fyrir fyrirtæki. Verkefnin felast aðallega í samsetningu, pökkun og flokkun. Að auki hefur Hæfingarstöðin verið að þróa eigin framleiðslu s.s. á trévörum og endurvinnslu á pappír.
Markmið Hæfingarstöðvarinnar er:
- Að veita dagþjónustu er miðast við við einstaklingsþarfir.
- Að auka færni þjónustunotenda til að takast á við verkefni utan heimilis.
- Að efla sjálfstæði þjónustunotenda í vinnubrögðum og ábyrgð þeirra í starfi.
- Að styrkja sjálfshjálpargetu og sjálfsímynd þjónustunotenda.
- Að efla samkennd hópsins jafnframt því að bæta framkomu og samskipti á vinnustað.
- Að stuðla að vellíðan og ánægju í starfi.
- Að bjóða þjónustunotendum upp á verkefni frá utanaðkomandi aðilum jafnframt því að þróa eigin framleiðslu.
- Að búa þjónustunotendur undir störf á almennum vinnumarkaði og/eða verndaðri vinnu.
- Að styðja við og sinna eftirfylgd hjá þeim þjónustunotendum er fara í vinnu á almennum vinnumarkaði.
Hæfingarstöðin er opin alla virka daga vikunnar frá kl. 8.00 - 16.00
Hæfingarstöðin í Keflavík - Hafnargötu 90 - 230 Keflavík - s: 421 2362
|